Sunna Kristín deilir reynslu sinni eftir krabbameinsgreiningu

Sunna Kristín greindist með ólæknandi krabbamein en er í dag krabbameinslaus.
eftir
fyrir 3 mánuðir síðan
2 mín. lestur

Sunna Kristín Hilmarsdóttir greindist árið 2021 með ólæknandi krabbamein, aðeins 37 ára að aldri. Hún segir að fyrstu mánuðina hafi hún verið í afneitun og vonað að um misskilning væri að ræða. Í dag er Sunna Kristín krabbameinslaus, og hefur meininu verið haldið í skefjum með nær daglegri lyfjameðferð.

„Mér fannst þetta mjög óraunverulegt, að vera svona ung og greinast með sjúkdóm sem ekki er búið að finna lækningu við,“ útskýrir hún, en hún greindist með mergæxli. Sunna Kristín tekur krabbameinslyf í þrjár vikur í senn og tekur svo viku í pásu. „Ég er krabbameinslaus í dag og búin að vera krabbameinslaus í að minnsta kosti tvö ár,“ bætir hún við.

Sunna Kristín deilir sinni reynslu í tilefni af Bleikum október og sölu Bleiku slaufu Krabbameinsfélagsins. Hún er virk í vinnu og námi og leggur mikla áherslu á að vera fullur þátttakandi í lífinu. „Að geta verið í vinnu og hitt fólk skiptir mig máli. Þegar maður hefur dottið út af vinnumarkaði í lengri tíma án þess að hafa valið það, þá fattar maður hvað það skiptir mann máli,“ segir hún.

Baklandið hefur spilað lykilhlutverk í bata hennar. „Það sem hefur hjálpað mér mest er að eiga góðan stuðning heima fyrir, góðan maka, góða fjölskyldu og vini sem eru til staðar þegar ég þarf á þeim að halda,“ útskýrir hún. Hún bendir einnig á mikilvægi jafningastuðnings þar sem þar sé hægt að ræða um málefni sem ekki séu endilega rædd heima fyrir. „Það er yfirþyrmandi tilfinning að standa andspænis dauðanum. Maður er kannski ekki mikið að tala um það við sína nánustu, en það er eðlilegra að ræða það við þá sem hafa upplifað það líka,“ segir Sunna Kristín.

Hún bendir á að ekki sé alltaf auðvelt að sjá að fólk sé veikt. „Ef þú myndir mæta mér í Krónunni myndirðu ekki halda að ég væri að glíma við ólæknandi sjúkdóm, ég ber það ekki utan á mér. En það skiptir máli að við vitum af þessu. Það er svo mikilvægt að við getum sett okkur í spor hvers annars og skilið raunveruleika manneskjunnar sem er við hliðina á okkur,“ segir hún.

Vitundarvakningin sem felst í Bleiku slaufunni skiptir Sunnu Kristínu máli, þar sem hún aðstoðar við að auka skilning á þessum erfiðu aðstæðum.

Tengt efni

Powered by GetYourGuide

Nýjast frá Heilsa

Fyrri grein

Amy Schumer deilir nýju útliti eftir þyngdartap á Instagram

Næsta grein

AI aðstoðar Medicare við ákvörðun um meðferð frá 2024