Leikir Íslands gegn Úkraínu í kvöld og Frakklandi á mánudagskvöldi í undankeppni HM karla í fótbolta eru báðir uppseldir. Þetta er í fyrsta skipti á tæplega áratug að íslenska landsliðið selur upp á tvo heimaleiki í röð.
Í samtali við mbl.is sagði landsliðsmaðurinn Þórir Jóhann Helgason: „Það er geggjað að íslenska þjóðin sé að styðja við bakið á okkur og fylla völlinn. Við höfum ekki séð það í langan tíma.“
Með sigri á Úkraínu í kvöld myndi íslenska liðið styrkja stöðu sína í baráttunni um eitt af tveimur efstu sætum riðilsins. „Við förum í leikinn til að vinna hann. Við mætum með baráttu og dugnaði, og það er hungur í liðinu til að skila frammistöðu,“ bætti Þórir við.