Crystal Palace tapaði 0-1 gegn AEK Larnaca frá Kýpur í Sambandsdeildinni í kvöld. Þetta var fyrsta tap liðsins síðan 10. október, þegar það tapaði gegn Everton. Eftir það gerðu þeir jafntefli gegn Bournemouth í síðustu umferð.
„Svona er Evrópuboltinn. Við verðum að læra af þessu, það er refsað fyrir smá mistök og að sama skapi fengum við nóg af tækifærum til að vinna. Það er ekki bara saga leiksins í dag heldur margra annarra,“ sagði Galsner þjálfari liðsins.
Jaydee Canvot var í annað sinn í byrjunarliðinu hjá Palace en hann gerði mistök í aðdraganda sigurmarksins. Sending hans fór beint á Marcus Rohden, sem sendi á Riad Bajic, sem skoraði með föstu skoti í nærhornið.
„Þetta er hluti af fótboltanum, það er enginn að kenna honum um, svona gerist. Hann kláraði færið frábærlega, ef þú skorar ekki, þá vinnur þú ekki. Við misstum stig í dag, það er svekkjandi, pirrandi og það er sárt, en við höldum áfram,“ bætti Glasner við.