Í kvöld fer fram úrslit Skrekks 2025, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík, í Borgarleikhúsinu og verður það í beinni útsendingu á RÚV.
Í þremur undankeppnum sem fóru fram síðustu viku tóku samtals 742 nemendur þátt frá 25 skólum og fluttu frumsamin atriði.
Í kvöld keppa eftirfarandi skólar:
- Klettaskóli
- Hagaskóli
- Fellaskóli
- Árbæjarskóli
- Háteigsskóli
- Breiðholtsskóli
- Langholtsskóli
Kynnar kvöldsins eru þau Salka Gústafsdottir, leikkona, og Bjarni Kristbjörnsson, leikaranemi. Á hverju ári kjósa grunnskólanemar Skrekkslag ársins og að þessu sinni verður lagið „Elli Egils“ með Herra Hnetusmjöri flutt í kvöld.
Fylgjast má með stemningunni baksviðs á Instagram hjá UngRÚV og á TikTok hjá RÚV.