Í sumar gekk ítalski landsliðsmarkvörðurinn Gianluigi Donnarumma til liðs við Manchester City eftir fjögurra ára dvöl hjá Paris Saint-Germain. Donnarumma lýsir yfir mikilli stolti yfir því að spila fyrir enska stórveldið eftir að hafa fest sig í sessi sem einn af bestu markvörðum heimsins.
Á sínum tíma hjá PSG hefur Donnarumma sannað gildi sitt, þar sem hann var einnig aðalmarkvörður AC Milan í sex ár áður en hann flutti til Parísar. Þrátt fyrir að vera aðeins 26 ára, býr hann yfir gríðarlegri reynslu, þar sem hann hefur leikið 76 landsleiki fyrir Ítalíu og spilaði sinn fyrsta A-landsleik aðeins 17 ára gamall. Á ferli sínum hefur hann unnið Meistaradeild Evrópu, Ligue 1, ítalska Ofurbikarinn, EM landsliða og Þjóðadeildina.
Donnarumma gekk til liðs við Man City á lokadegi sumargluggans og fór strax að spila fyrir Ítalíu. Í nýju viðtali lýsti hann því hvernig það er að koma til Manchester. „Sagan talar sínu máli. Sú staðreynd að Pep vildi fá mig hingað er nóg til að gera mig stoltan. Það er ólýsanleg tilfinning að vera kominn hingað. Ég held að hann sé besti þjálfari heims og ég er viss um að hann mun hjálpa mér mikið. Við getum afrekað frábæra hluti saman,“ sagði Donnarumma.
Hann bætir við: „Þetta er nýr kafli á ferlinum og í lífinu. Ég er ótrúlega spenntur fyrir því að spila með Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Þetta er rosaleg áskorun. Mig hefur alltaf dreymt að spila í þessari deild, bestu deild í heimi. Að mínu mati er hápunktur ferils hvers leikmanns að gera góða hluti í ensku úrvalsdeildinni. Það er mjög erfitt að ná árangri í þessari deild. Ég er spenntur að spila fyrir þetta félag sem hefur verið að reyna að kaupa mig í langan tíma. Vonandi get ég endurgoldið traustið sem mér hefur verið sýnt.“
Donnarumma mun berjast um byrjunarliðssæti við James Trafford og Stefan Ortega. „Ég er ánægður því að samkeppni er jákvæð fyrir alla. Ég get ekki beðið eftir að hitta hann (James Trafford) og alla nýju liðsfélagana. Það er mikilvægt að við séum sterkur og samheldinn hópur með fólki sem er annt um hvort annað. Það er lykillinn að árangri. Saman getum við afrekað merkilega hluti.“
02.09.2025 09:13 Donnarumma til Man City (Staðfest)