Diane Keaton, þekkt leikkona og Óskarsverðlaunahafi, lést á laugardaginn, 79 ára að aldri. Fjölskylda hennar greindi frá því að hún hefði dáið úr lungnabólgu.
Í skriflegri yfirlýsingu til bandaríska fjölmiðilsins People sagði fjölskyldan: „Fjölskylda Keaton er innilega þakklát fyrir þann ótrúlega stuðning og kærleika sem hún hefur fengið undanfarna daga vegna ástkærrar Diane, sem lést úr lungnabólgu 11. október.“
Keaton var ein af skærustu stjörnum Hollywood og hlaut Óskarsverðlaun árið 1977 fyrir besta leikarahlutverk í kvikmyndinni Annie Hall, sem var leikstýrð af Woody Allen, þáverandi kærasta hennar. Myndin var að miklu leyti byggð á hennar eigin lífi.
Auk þess hlaut hún einnig Óskarstilnefningar fyrir hlutverk sín í myndunum Reds, Marvin“s Room og Something“s Gotta Give.