Breiðablik heldur vonum sínum um að ná Evrópusæti á lífi eftir að hafa unnið Fram með 3:1 í 25. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson skoraði annað mark liðsins í leiknum og var ánægður með útkomuna þegar mbl.is ræddi við hann.
Hann lýsti sigri liðsins sem „þýðingarmikinn og mikilvægann“ í baráttunni um Evrópusæti, sem nú er opinn fyrir liðin. „Nú eru tveir úrslitaleikir eftir, en gríðarlega mikilvægt er að sækja þessi úrslit núna fyrir landsleikjafrí,“ sagði Höskuldur.
Þegar rætt var um fyrri hálfleik, sem var mjög sterkur hjá Blikum, sagði hann að liðið hefði komið með góða ákefð. „Þeir verða kannski bara vankaðir við að fá okkur svona strax í andlitið og ná boltanum á þeirra síðasta þriðjungi. Mér fannst við gera vel í fyrri hálfleik með því að skora þessi þrjú mörk,“ bætti hann við.
Í seinni hálfleik gefa Blikar talsvert eftir, þar sem Fram reyndi að hóta mörkum, en náði ekki að skora. „Já, ég held þetta sé rétt greining hjá þér. Við fáum alveg færi til að drepa leikinn með því að setja fjórða markið. Ég hefði viljað sjá meira drápseðli þar hjá okkur. En síðan eru þeir með frábæra leikmenn og þegar þeir fara í sínar skyndisóknir, þá þurftum við bara að þjást aðeins. Varnarmennirnir okkar gerðu vel í að halda hreinu í seinni hálfleik,“ sagði hann.
Kristinn Steindórsson fór út af í hálfleik vegna meiðsla. „Hann fékk aðeins aftan í lærið og mat það þannig að fara út af áður en þetta yrði eitthvað ljótt. Blessunarlega er smá frí núna og hann fær tíma til að jafna sig. Vonandi verða þetta bara nokkrir dagar,“ útskýrði Höskuldur.
Næsti leikur liðsins er á móti nýkrýndum Íslandsmeisturum Víknga. Blikar þurfa að fara inn í þann leik til að vinna og halda Evrópubaráttunni lifandi. „Við munum að sjálfsögðu standa heiðursvörð fyrir þá og óska þeim til hamingju. Þeir eru búnir að vera bestir á þessu móti. Síðan er ekkert að gera meira úr því en að sækja þessi þrjú stig sem í boði eru,“ sagði Höskuldur.
Hann útskýrði að til þess að vinna Víknga þyrfti liðið að vera hugrakkir, fastir fyrir og með mikla ákefð. „Síðan þarf að vera gott flæði í uppbyggingu á sóknum hjá okkur og skora mörk auðvitað,“ sagði Höskuldur í samtali við mbl.is.