Breiðablik tekur á móti Þór/KA í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag klukkan 14:00. Leikurinn fer fram á Kópavogsvelli.
Þetta er síðasta umferðin fyrir skiptingu deildarinnar, og staðan er skýr: Breiðablik er í efsta sæti með 46 stig, á meðan Þór/KA er í sjöunda sæti með 21 stig.
Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu á mbl.is.