Richard Kenneth Djerf, 55 ára fangi í dauðadeild í Arizona, var tekinn af lífi á föstudaginn 17. október. Djerf hafði verið í fangelsi í meira en þrjátíu ár eftir að hann drap fjögurra manna fjölskyldu í ólýsanlegri hefndaraðgerð í september 1993.
Samkvæmt gögnum málsins grunaði Djerf fyrrverandi herbergisfélaga sinn, Albert Luna yngri, um að hafa stolið rafmagnstækjum og skammbyssu úr íbúðinni sem þeir deildu. Nokkrum mánuðum síðar mætti Djerf að heimili foreldra Alberts undir því yfirskini að vera blómarsendill. Með þessu tókst honum að komast inn á heimilið þar sem hann batt móður Alberts, Patriciu, og fimm ára son hennar, Damien, sem voru tveir heima þegar Djerf bar að garði.
Í frásögn lögreglu kemur fram að Djerf hafi spurt Patriciu: „Viltu horfa á barnið þitt deyja, eða viltu að barnið horfi á þig deyja?“ áður en hann skaut þau bæði til bana. Þegar faðirinn, Albert Luna eldri, og 18 ára dóttir hans, Rochelle, komu heim síðar sama dag réðst Djerf á þau. Hann nauðgaði Rochelle og stakk hana til bana, áður en hann stakk Albert eldri og skaut hann. Djerf reyndi síðar að kveikja í húsinu til að hylma yfir glæpnum, en það mistókst.
Richard Djerf sendi frá sér handskrifaða yfirlýsingu mánuði áður en aftakan fór fram, þar sem hann sagði sig ekki ætla að biðja um náð. „Ef ég finn enga ástæðu til að hlífa lífi mínu, hvers vegna ætti einhver annar að finna hana?“ sagði hann meðal annars, og bætti við að hann vonaðist til að dauði hans myndi færa aðstandendum fjölskyldunnar frið, einkum Albert yngri.
Að þessu sinni hafa tveir fangar verið teknir af lífi í Arizona á árinu, en hinn var Aaron Brian Gunches, sem árið 2002 myrti fyrrverandi eiginmann kærustu sinnar.