Sýn hefur boðað til starfsmannafundar í dag, samkvæmt upplýsingum frá mbl.is. Ástæðan er afkomuviðvörun sem félagið sendi frá sér í gær, þar sem rekstrarhagnaður á árinu er nú áætlaður um 280 milljónir króna. Í fyrri spá var hagnaður hins vegar áætlaður á bilinu 800-1000 milljónir króna.
Þetta leiddi til þess að hlutabréfagengi Sýnar hrapaði um 20% þegar markaðir opnuðu í morgun. Gengið hefur því lækkað um rúmlega 30% á árinu. Samkvæmt tilkynningu Sýnar eru tekjur af stakri sjónvarpsáskrift undir áætlun, ásamt tekjum af auglýsingasölu og hlutanetinu.
Félagið sendi stjórnvaldi pillu í afkomuviðvörun og vísaði til skorts á raunhæfum aðgerðum til að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna miðla. Sýn er nú að vinna að endurskoðun á tekjumódelinu í tengslum við fjölmiðlarekstur félagsins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn á árinu sem boðað er til óvænts starfsmannafundar. Í sumar sameinuðust vörumerki fyrirtækisins undir nafni Sýnar og var haldinn stóri starfsmannafundur með sólarhringsfyrirvara. Markmiðið með fyrri fundinum, sem fór fram þann 11. júní síðastliðinn, var að stilla saman strengi fyrir væntanlega stórsókn. Þar var einnig tilkynnt að Stöð 2 heyrði sögunni til og að útsendingar yrðu framvegis í nafni Sýnar.